Eftir erfiða fæðingu hvað varðaði skála og bíla var ákveðið að fara inní Hólaskóg á Transporterinum. Lögðum af stað úr bænum á föstudagskvöldinu með stuttri viðkomu á KFC. Stutti slóðinn að skálanum í Hólaskóg var þakinn snjó og tókst okkur að festa okkur a.m.k. 20 sinnum en það hafðist að lokum. Unnar umsjónarmaður tók vel á móti okkur og við komum okkur fyrir í skálanum.
Á laugardagsmorgninum var ákveðið að trítla á Heklu en óvíst hvaðan við myndum hefja gönguna, ætluðum að sjá til hvað þessi elska (ekki jeppi) gæti komist langt. En við vorum ekki komin langt frá skálanum þegar við byrjuðum að festa okkur, aftur og aftur. Þegar við áttum cirka 2 metra eftir á malarveg sprakk dekkið og þar með fór sú fallega hugsun að trítla á Heklu.
Í staðinn ákváðum við að taka góða göngu að „Gjánni“ og vorum við ekki svikin af þeirri frábæru gönguferð. Að sjálfsögðu slógum við upp grillveislu um kvöldið og eftir matinn bauð Unnar okkur í fjórhjólatúr að Sultartangavirkjun og sýndi okkur m.a gríðarlega stóran og fallegan helli sem við nefndum Grýlukertahelli.
Á sunnudeginum stóð til að ganga að Háafoss enn Unnar kom með betri hugmynd að fara á fjórhjólunum, ehh já !!
Krúsuðum um hálendið allan daginn og svo tók við að skipta um dekk á bílnum og festa okkur aftur og aftur...
Alveg meiriháttar skemmtileg helgi !


Hér eru myndir 